Makalaus fær frábærar viðtökur!

Frumraun bloggarans og djúpulaugarvarðarins Þorbjargar Marínósdóttur hefur heldur betur slegið í gegn en Makalaus situr á toppi metsölulista FÍBÚT þessa vikuna. Fyrr í vikunni birti svo Morgunblaðið gagnrýni um bókina eftir Ingveldi Geirsdóttur sem að gefur henni þrjár stjörnur og hrósar m.a. málfari Tobbu: „Málfar Tobbu er oft mjög skemmtilegt, hún er mikið í nýyrðasmíð og er með sniðugan og hugmyndaríkan orðaforða… Bókin er hröð og lífleg… tilvalin til að taka með sér í sólbaðið eða bústaðinn í sumar.“

Í vikunni seldist 1. prentun af Makalaus upp á lager en aðdáendur Tobbu þurfa ekki að örvænta því enn leynast eintök í verslunum um land allt. Búið er að panta aðra prentun af bókinni og kemur hún vonandi í hús upp úr næstu helgi.


INNskráning

Nýskráning