Nú líður að því að landsmenn fái að kynnast betur dúndurpíunni Lilju Sigurðardóttur, aðalpersónunni í metsölubókinni Makalaus, því þættir byggðir á þeirri bráðfjörugu bók Tobbu Marinósdóttur hefja göngu sína á Skjá einum í mars. Lilju er einhleyp stúlka í Reykjavík. Hún er nokkrum kílóum of þung og alltaf nokkrum mínútum of sein. Vinkonur Lilju gera líf hennar bærilegra enda eru þær einstaklega litríkar og skemmtilegar. Eins og margar aðrar stelpur er hún að leita að ástinni sem oft á tíðum getur reynst erfitt…