Kristín Marja

Magnaður aldarspegill

Loksins eru hinar mögnuðu skáldsögur Kristínar Marju Baldursdóttur um Karitas Jónsdóttur aftur fáanlegar. Fyrsta bókin um Karitas, Karitas – án titils, sem kom út árið 2004 sló rækilega í gegn og seinni bókin, Óreiða á striga, gaf henni ekkert eftir í vinsældum.

Bækurnar um Karitas eru uppáhaldsbækur fjölmargra Íslendinga og hafa hlotið ýmsar viðurkenningar, m.a. var sú fyrri tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og saman fengu þær Fjöruverðlaunin. Þær eru líka smám saman að koma út í Evrópu, til þessa á dönsku, frönsku, sænsku, þýsku og hollensku, og aðdáendahópur höfundarins stækkar í sífellu.

INNskráning

Nýskráning