Þórarinn Eldjárn hefur hlotið verðskuldað lof fyrir þýðingu sína á leikritinu Macbeth eftir William Shakespeare frá þeim sem hafa skrifað um jólasýningu Þjóðleikhússins á verkinu.
Þýðingin kom líka út á bók og er væntanlegum áhorfendum jafnvel ráðlagt að lesa textann fyrir sýningu til að geta notið hennar ennþá betur. Eins og í þýðingu sinni á Lé konungi fyrir tveim árum færir Þórarinn verk skáldjöfursins alveg upp í fang lesenda og áheyrenda á mergjaðri nútímaíslensku án þess þó að draga nokkuð úr margræðni þess. Macbeth hefur áður verið þýddur af að minnsta kosti þrem viðurkenndum þýðendum, Matthíasi Jochumssyni, Helga Hálfdanarsyni og Sverri Hólmarssyni.