Má bjóða þér ljóð með súpunni?

Sigurður Pálsson kemur fram á ljóðlestrarviku Bókabúðar Máls og menningar og Súfistans í hádeginu kl. 12.15 á morgun fimmtudag. Dagskráin ber yfirskriftina SÚPUSKÁL:D og er unnin í samvinnu við bókmenntaborgina Reykjavík. Sigurður gaf nýverið út safnritið Ljóðtímasafn.

Ljóðskáldin eiga það svo sem ekki sammerkt að aðhyllast einhvern súpuskáldskap, þó það væri vissulega áhugavert, heldur kallast heiti hátíðarinnar á við súpuskál af ásettu ráði. Það er nefnilega þannig að samhliða þeirri andlegu næringu í formi ljóðalesturs er boðið uppá sérstakt tilboð á ilmandi súpuskál, brauði og kaffibolla á spottprís. 

Tilvalin hádegisnæring fyrir öll skilningarvitin.



INNskráning

Nýskráning