Lestrarbarn

Lumar þú á handriti?

Forlagið og Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka auglýsa eftir skáldsögum fyrir börn og unglinga til að keppa um Íslensku barnabókaverðlaunin 2011. Handritið skal vera nógu langt til að bera uppi heila bók, án myndskreytinga, að lágmarki 50 ritvinnslusíður að lengd.  Skilafrestur er til 1. febrúar 2011. Verðlaunin nema 500.000 krónum auk höfundarlauna. Handrit á að merkja með dulnefni en rétt nafn höfundar fylgi með í umslagi. Allir hafa rétt til þátttöku.

Handritum skal skila í fjórriti til:

Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka
Forlagið
Bræðraborgarstíg 7
101 Reykjavík

Stofnað var til Íslensku barnabókaverðlaunanna í tilefni af sjötugsafmæli Ármanns Kr. Einarssonar rithöfundar árið 1985. Ármann var þá vel þekktur og vinsæll rithöfundur en langaði til að leggja sitt af mörkum til að auðvelda yngri höfundum að koma sér fram á sjónarsviðið. Það hefur sannarlega heppnast því verðlaunabækurnar eru nú orðnar 26 talsins og fjölmargir höfundar hafa gefið út sínar fyrstu bækur undir merkjum verðlaunanna. Að Íslensku barnabókaverðlaununum standa nú fjölskylda Ármanns Kr. Einarssonar, Barnavinafélagið Sumargjöf, IBBY á Íslandi og Forlagið.  Dómnefnd verðlaunanna skipa fulltrúar þessara aðila auk tveggja nemenda úr 8. bekk.

Nánari upplýsingar veitir Sigþrúður Gunnarsdóttir, ritstjóri barnabóka hjá Forlaginu, sigthrudur@forlagid.is



Eftirtaldar bækur hafa hlotið Íslensku barnabókaverðlaunin:

Emil og Skundi eftir Guðmund Ólafsson, 1986

Franskbrauð með sultu eftir Kristínu Steinsdóttur, 1987

Fugl í búri eftir Kristínu Loftsdóttur, 1988

Álagadalurinn eftir Heiði Baldursdóttur, 1989

Í pokahorninu eftir Karl Helgason, 1990

Gegnum þyrnigerðið eftir Iðunni Steinsdóttur, 1991

Benjamín dúfa eftir Friðrik Erlingsson, 1992

Brak og brestir eftir Elías Snæland Jónsson, 1993

Röndóttir spóar eftir Guðrúnu H. Eiríksdóttur, 1994

Eplasneplar eftir Þóreyju Friðbjörnsdóttur, 1995

Veislan í barnavagninum eftir Herdísi Egilsdóttur (texti) og Erlu Sigurðardóttur (myndir), 1995

Grillaðir bananar eftir Ingibjörgu Möller og Fríðu Sigurðardóttur, 1996

Risinn þjófótti og skyrfjallið eftir Sigrúnu Helgadóttur (texti) og Guðrúnu Hannesdóttur (myndir), 1996

Margt býr í myrkrinu eftir Þorgrím Þráinsson, 1997

Heljarstökk afturábak eftir Guðmund Ólafsson, 1998

Leikur á borði eftir Ragnheiði Gestsdóttur, 2000

Sjáumst aftur … eftir Gunnhildi Hrólfsdóttur, 2001

Ferðin til Samiraka eftir Hörpu Jónsdóttur, 2002

Biobörn eftir Yrsu Sigurðardóttur, 2003

Leyndardómur ljónsins eftir Brynhildi Þórarinsdóttur, 2004

Háski og hundakjöt eftir Héðin Björnsson, 2006

Sagan af undurfögru prinsessunni og hugrakka prinsinum hennar eftir Margréti Tryggvadóttur (texti) og Halldór Baldursson (myndir), 2006

Loforðið eftir Hrund Þórsdóttur, 2007

Steindýrin eftir Gunnar Theodór Eggertsson, 2008

Þvílík vika eftir Guðmund Brynjólfsson, 2009

Ertu Guð, afi? eftir Þorgrím Þráinsson, 2010


(Árin 1996 og 2006 var auglýst sérstaklega eftir myndskreyttum bókum, auk hefðbundinna skáldsagna)


INNskráning

Nýskráning