Á lopadögum í Hagkaup verður hin glæsilega uppskriftabók Prjónað úr íslenskri ull á sérstöku kynningarverði og íslenskur lopi á tilboði. Þetta er kjörið tækifæri til að fá sér bókina og í leiðinni kaupa lopann í uppskriftirnar.
Hulda, prjónasnillingur frá Ístex, kynnir nýju prjónabókina og íslenska lopann sem hér segir:
Skeifunni fimmtudag, 1. sept. kl. 16 – 18
Smáralind föstudag, 2. sept kl. 16 – 18
Kringlunni laugardag, 3. sept. kl. 14 – 17
Kíkið á Lopadaga í Hagkaup og skoðið þessa dásamlegu prjónabók sem er mikill fengur fyrir áhugasamt prjónafólk sem þyrstir í klassískar og fallegar uppskriftir að flíkum úr íslenskri ull.