Matreiðslubókin Góður matur – gott líf í takt við árstíðirnar var gífurlega vinsæl fyrir jólin og á endanum seldist hún upp. Við getum þó glatt matgæðinga og fagurkera með því að bókin er nú komin úr endurprentun og er fáanleg aftur í næstu bókabúð.
Góður matur – gott líf er svo miklu meira en matreiðslubók með uppskriftum. Í bókinni sýna Gísli Egill og Inga hvernig fjölskyldan getur notið þess besta sem lífið hefur að bjóða með því að þiggja gjafir náttúrunnar; rækta, tína, veiða, verka og nýta – og elda síðan og framreiða það sem hollt er og gott.
Einnig gefa hjónin uppskriftir að miklum fjölda girnilegra rétta, ljúffengum hversdagsmat í bland við gómsæta veislurétti. Einstök bók sem gleður bæði auga og maga!