Sækið ljósuna

Ljósmóðirin mætt aftur á RÚV

Það hefur ekki farið framhjá neinum aðdáanda ljósmóðurinnar Jenny Lee að önnur þáttaröðin um hana hófst á RÚV í gærkvöldi. Vonandi hafa allir líka tekið eftir því að bókin sem þættirnir eru byggðir á er komin út í kilju hjá Forlaginu í þýðingu Ólafar Eldjárn. Ekki var hægt að láta bókina heita einfaldlega „Ljósmóðirin“ eins og þættina á RÚV af því að það bókarheiti var upptekið; þess í stað var enska heitið íslenskað og bókin látin heita „Sækið ljósuna“. Á ensku heitir bæði bók og þáttaröð „Call the Midwife“.

Kolbrún Bergþórsdóttir fagnar útgáfunni í sunnudagsblaði Mogga í gær og segir: „Í bókinni er að finna sterkar og lifandi mannlýsingar og glöggar lýsingar á aðstæðum sem oft eru ömurlegar. Hreinskilin og eftirminnileg frásögn í bók sem ætti að falla stórum lesendahópi í geð. Ólöf Eldjárn þýðir verkið með miklum ágætum.“

INNskráning

Nýskráning