Skáldsaga Kristínar Steinsdóttur, Ljósa, hreyfir við lesendum um þessar mundir eins og sjá má af lofsamlegum umsögnum sem um hana hafa birst, og víðar en á menningarvettvanginum. Umfjöllunarefni bókarinnar er enda eldfimt, geðsjúkdómar og takmarkaðar leiðir fyrri tíða manna til að takast á við þá og styðst Kristín þar lauslega við lífshlaup ömmu sinnar. Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins, gerði bókina að umtalsefni fyrir nokkru undir yfirskriftinni „Amman sem aldrei var talað um“ og sagði þar meðal annars: „Lýsingarnar í bókinni á lífi Ljósu og viðbrögðum nánasta umhverfis hennar, foreldra, systkina, barna, sveitunga við alvarlegum geðsjúkdómi, sem á hana lagðist, eru hins vegar með þeim hætti, að þær geta ekki orðið til í hugarheimi nokkurs skálds. Þær hljóta að byggjast á frásögnum barna hennar og annarra aðstandenda, lýsa lífsreynzlu og þjáningum þeirra vegna sjúkdóms, sem mótar líf allra sem fyrir honum verða og sennilega næstu kynslóða á eftir. Þær eru settar fram af slíkri virðingu fyrir hrikalegum örlögum þessa fólks að eftir stendur einstæð frásögn af veröld, sem áður var lokuð og fæstir vissu mikið um.“ Í Sunnudagsblaði Moggans birtist ítarlegt viðtal Péturs Blöndals við Kristínu þar sem hún sagðist meðal annars hafa talað við sveitunga ömmu sinnar við vinnslu bókarinnar, fjörgamalt fólk sem mundi eftir henni, bæði af góðu og illu. Sama dag tók leiðari blaðsins bókina til umræðu og þar segir meðal annars: „Það er sláandi að lesa um skilyrðin sem fólk bjó við á Íslandi, sem glímdi við geðveiki í upphafi síðustu aldar. Rithöfundurinn Kristín Steinsdóttir lýsir því í Ljósu, áhrifamikilli skáldsögu sem er nýkomin út.“