Kristín Steinsdóttir

Ljósa fær frábærar viðtökur

Skáldsaga Kristínar Steinsdóttur, Ljósa, hefur þegar vakið verðskuldaða athygli gagnrýnenda og lesenda. Í dómi Morgunblaðsins um helgina kemur fram að hér sé á ferðinni „…vel skrifuð saga sem kemur við hjartað í lesandanum…“ og gefur rýnirinn Kristín Heiða Kristinsdóttir henni þrjár og hálfa stjörnu. Á bókabloggi sínu á Eyjunni fer Jenný Anna Baldursdóttir mikinn og skrifar „…grípandi, falleg og skrifuð af djúpu innsæi. Af þeim íslensku skáldsögum sem ég hef lesið í haust þá hefur Ljósa tvímælalaust vinninginn.“ Á Bókmenntavefnum skrifar síðan Úlfhildur Dagsdóttir um söguna og segir hana einkennast af hógværum krafti og vera bæði áhrifamikila og fallega.


INNskráning

Nýskráning