Finnska forsetafrúin, Jenni Haukio, heimsótti Forlagið í dag og kynnti sér íslenska bókaútgáfu. Jenni er sjálf ljóðskáld og mjög virk í bókmenntaheiminum finnska og það var sérlega gaman fyrir hana að hitta kollega sinn, Gerði Kristnýju, sem hún hafði raunar hitt áður í Finnlandi. Jenni og Gerður eru gefnar út af sama forlagi í Finnlandi, Savukeidas, en þar kemur í sumar út verðlaunaljóðabókin Blóðhófnir í finnskri þýðingu Tapio Koivukari. Á myndinni halda þær stöllur á Blóðhófni á sænsku og ensku en Jenni fékk handrit að finnsku þýðingunni að gjöf frá Gerði.
Jenni Haukio hefur komið nokkrum sinnum til Íslands áður og er ákveðin í að hafa betri tíma næst þegar hún kemur til að slaka á í íslenskri náttúru – sem hún dáist mjög að – og yrkja.