Nú fyrir skömmu kom út í Þýskalandi safn ljóða eftir Þorstein frá Hamri. Bókin ber heitið Jarðarteikn – Erdzeichen og í henni getur að líta 38 valin ljóð á íslensku og þýsku úr sextán ljóðabókum Þorsteins. Þorsteinn var fyrir skömmu á ferð í Þýskalandi og tók þátt í blaðamannafundi í Frankfurt þar sem menningardagskrá Sögueyjunnar var kynnt. Þar las hann upp ljóð við góðar undirtektir þýskra blaðamanna. Á Degi íslenskrar ljóðlistar (Tag der Isländischen Poesie), las Þorsteinn svo upp ljóð á metnaðarfullri ljóðadagskrá í Bókmenntahúsinu í Berlín og kynnti Vigdís Finnbogadóttir hann við upphaf dagskrárinnar. Var gerður afar góður rómur að ljóðum hans og tryggðu margir gestanna sér eintak.
Í tengslum við Dag íslenskrar ljóðlistar fengu gestir bókmenntahúsanna gefins eintak af nýrri safnbók íslenskrar ljóðlistar á þýsku Isländische Lyrik, sem Insel Verlag gefur út. Þar er dregin upp mynd af þróun íslenskrar ljóðlistar allt frá árdögum hennar til okkar tíma, og á Þorsteinn frá Hamri þrjú ljóð í henni.