Íslenska litabókin

Litaðu Ísland!

Finnst þér gaman að lita? Íslenska litabókin er safn verka eftir hóp listamanna sem kallar sig Gunnarsbörn og í henni eru fallegar og lýsandi myndir úr íslensku landslagi og umhverfi, með ævintýralegri dulúð í bland við alkunn kennileiti úr hversdeginum.

Myndirnar eru prentaðar á þykkan hágæðapappír sem tekur vel við tússlitum, vatnslitum, pastellitum og trélitum. Myndirnar eru eingöngu öðrum megin á hverju blaði auk þess sem síðurnar eru rifgataðar svo auðvelt sé að láta fullbúin li(s)taverk njóta sín sem best uppi á vegg.

Í tilefni af útgáfunni verður efnt til útgáfuboðs í verslun Eymundssonar í Austurstræti næstkomandi fimmtudag, þann 28. febrúar, kl. 17. Allir velkomnir og léttar veitingar í boði.

INNskráning

Nýskráning