Listin að þjösnast á líkum – pistill frá Guðbergi

Eru ekki allir í stuði? spurði heimspekingurinn Hemmi Gunn eins og frægt er orðið í sögunni.
Jú, allir Íslendingar eru alltaf í stuði, einkum þessa dagana, en stuðið getur stundum gengið of langt hjá sumum.
Aðferðafræðin er umdeild fræði. Sú fræðigrein er nauðsynleg til þess að setja við hana spurningarmerki ekki bara á Háskólum heldur líka í leikhúsum.
Þess vegna er hægt að segja að sú aðferðafræði að setja upp leikritið Nei, Dorrit, sé röng aðferðafræði eins og málum er háttað um þessar mundir á landinu kalda, besta landi á jörð, eins og segir í söngtexta um eyjuna jöklahvítu sem kallar á okkur öll (til dáða)!
Einkum er aðferðafræðin í leiklistinni í verkinu Nei, Dorrit, algert spurningarmerki ef haft er í huga að Ólafur Ragnar Grímsson er orðinn efni í lík á forsetastóli, eins og sumir segja. 
Fólkið sem stendur að sýningunni Nei, Dorrit óhreinkar ekki Dorrit heldur drullar á sig sjálft á sviði, en ekki á sama hátt og Brecht sagði í sínum fræðum.
Annars er merkilegt, innrætislega séð, að aðstandendur sýningarinnar eru allir, að því er virðist, afkomendur „frægra Íslendinga”.
Er innrætið þá svona innan erfðafræðinnar?
Fæðir íslenskt eðalfólk af sér ótugtir?
Maður gæti haldið það eftir að hafa heyrt sumar ótugtir fæddar í menntastétt landsins segja að Davíð Oddsson sé flúinn í skattaskjól og sitji þar undir pálmum og drekki kókosmjólk í staðinn fyrir brennivín í Seðlabankanum!
Oft er ekkert að marka viðtöl við frægt fólk, hvorki við Dorritt né Ólöfu frá Hlöðum og því ekki við hæfi að færa þau til sviðslistar.
Þannig viðtöl segja venjulega meira um viðtalsfremjandann en þann/þá sem viðtalið er framið á.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar!
Oft leyndist strengur í brjósti sem brast við biturt andsvar gefið án sakar!
Reynum heldur að „stilla saman strengi”, eins og fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar sagði oft í hástemmu lífsins.
Stillum samt ekki saman strengi eins og Neró sem stillti sína strengi meðan Rómarborg brann og heimsveldið féll.
Fyrirgefið, ekki er við jöfnu að líkja Útrásarveldinu íslenska og Heimsveldinu rómverska.
Setjum ekki samasemmerkið = út í hött!
Reynum heldur að taka saman höndum og leggja á okkur tunguhaft til þess að finna hinn eina sanna (íslenska tón) segi ég við afkomanda Halldór Laxness og nota hans eigin orð um tóninn rétta máli mínu til stuðnings.
Sá tónn finnst örugglega ekki með því að senda Dorrit tóninn.
Viðtöl eru ekki góðar heimildir um sannleikann. Og „sannleika” í viðtölum við heimsfrægt fólk ætti enginn að sviðsetja.
Nema kannski í svínastíunni.


INNskráning

Nýskráning