Lifsmörk

Lífsmörk hlýtur frábæran dóm

Bók Ara Jóhannessonar, Lífsmörk, hlaut nú í ágústbyrjun frábæran dóm í vefriti Hugvísindasviðs Háskóla Íslands, Hugrás.

Hildur Ýr Ísberg, gagnrýnandi og doktorsnemi í íslenskum bókmenntum, lofaði bókina hástert og segir m.a.

„… engu er ofaukið í hinni nauðsynlegu forsögu og hin rólega frásagnaraðferð myndar áhugaverða mótsögn við viðburðaríkan söguþráð bókarinnar. Mikilvægustu átök bókarinnar eru þó í mörkunum á milli læknis og sjúklings. Hvað gerist til að mynda þegar læknir á hinu litla Íslandi fær besta vin sinn til meðhöndlunar? Er fjarlægð milli læknis og sjúklings æskileg, jafnvel nauðsynleg? Ef svo er, að hversu miklu leyti? Hve mikinn þátt á læknir að taka í þjáningu sjúklingsins? Hver liggja mörkin milli samlíðunar við sjúklinginn og kulnunar í starfi, fjarlægðar og tilfinningaleysis? Hvoru megin liggur líknardrápið? Bók Ara Jóhannessonar er sambland af spennusögu og þroskasögu. Lífsmörk er spennandi, þarft og gott innlegg í íslenskt bókmenntalíf, ekki síst vegna þess að höfundurinn er læknir og þekkir veruleikann sem hann skrifar um innan frá, veruleika sem flestum lesendum er hulinn … Úr öllu þessu verður mögnuð blanda af spennu, dýpt og átökum sem mynda afskaplega spennandi sögufléttu.“

Lífsmörk kom úr á vordögum og hlaut prýðisgóða dóma strax frá útgáfu. Ari Jóhannesson er sérfræðingur í lyflækningum og starfar á Landspítala. Hann hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2007 fyrir ljóðabókina Öskudagar.

Hér má lesa dóminn í heild sinni

INNskráning

Nýskráning