Síðasti hlekkurinn

Lífið að leysa og Síðasti hlekkurinn lofaðar!

Lífið að leysa eftir Alice Munro og Síðasti hlekkurinn eftir Fredrik T Olsson fengu báðar afskaplega lofsamlegar umsagnir í Morgunblaðinu um helgina.

Steinþór Guðbjartsson, gagnrýnandi, gaf Síðasta hlekkum heilar fjórar stjörnur og sagði m.a.: „Persónurnar eru sem ljóslifandi og lesandinn ferðast með þeim á ógnarhraða fram og aftur í leit að lausninni … Síðasti hlekkurinn er mjög spennandi bók og frásögnin heldur allan tímann … Þýðingin hittir í mark og lipur texti ásamt mikilli spennu gerir það að verkum að lesandi getur ekki hætt fyrr en yfir lýkur.“

Kolbrún Bergþórsdóttir var sömuleiðis hrifin af Síðasta hlekknum og sagði um hana: „Þeir sem vilja óstöðvandi spennu og ekta hasar verða ekki fyrir vonbrigðum með hina hrollvekjandi spennusögu Síðasti hlekkurinn … Viðburðarrík, hrollvekjandi og spennandi – og ákaflega skemmtileg aflestrar fyrir spennusagnafíkla. Höfundurinn hafði greinilega gaman af því að skrifa bókina og það er gaman að lesa hana.“

Kolbrún gerði Nóbelsverðlaunabókina Lífið að leysa sömuleiðis að umfjöllunarefni: „Það er ástæða til að hvetja bókelskt fólk til að lesa smásögur Alice Munro, sem er höfundur sem kann svo vel þá list að segja margt í fáum orðum. Sögur hennar eru vandlega unnar og skrifaðar af djúpum skilningi á mannlegu eðli og tilfinningum sem við þekkjum flest öll og geta verið svo skrýtnar og óútreiknanlegar. Það er líka gott að fá í kaupabæti innihaldsríkan eftirmála um höfundinn og bækur hennar, sem þýðandinn Silja Aðalsteinsdóttir skrifar.“

Nýlega tók Jórunn Sigurðardóttir Munro og bókina fyrir í útvarpsþætti sínum Orð um bækur og er rétt að vekja athygli á umfjölluninni sem og viðtali hennar við Silju Aðalsteinsdóttur, þýðanda bókarinnar.

INNskráning

Nýskráning