Stúlkan sem sagðist ævinlega til í „sukkið“, gat elskað tvo menn í einu, kúrði til klukkan ellefu og sat annars hugar undir guðs orði, er komin hátt á sjötugsaldur. Hún er komin óravegu frá hinu óhaggandi samfélagi embættismanna um miðja nítjándu öld; hinum formfasta heimi landshöfðingja tímans. Óravegu frá léttleika æskunnar í húsinu á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis, húsinu sem brátt mun brenna til kaldra kola.
Stúlkan er biskupsdóttirin Þóra Pétursdóttir en saga hennar, rituð af Sigrúnu Pálsdóttur, er nú komin út. Þarna segir af kjólum og karlmönnum, draumum og glæstum vonum; grátbroslegum stundum í lífi lítillar þjóðar. Finndu söguna lifna við og kynnstu einni af fáum aðalsmeyjum Íslands, stílfimi formæðra okkar og fortíðinni sem við erum svo fljót að gleyma.