Nú á að vera kominn inn á hvert heimili nettur bæklingur sem ber yfirskriftina Lestur er lykill. Úgefendur eru Félag íslenskra bókaútgefenda, Reykjavík bókmenntaborg UNESCO, Borgarbókasafnið og Barnabókasetur. Skilaboðin eru einföld: Lesum með börnunum okkar, lesum fyrir þau og hlustum á þau lesa sjálf. Lestur er nefnilega ekki bara lykill að öllum þeim upplýsingum sem geymdar eru á rituðu máli, í bókum eða á netinu, heldur líka svo mikilli ánægju og gleði, þekkingu og visku.
Í bæklingnum eru teknar saman nokkrar góðar ástæður fyrir því hvers vegna er hollt og gott að lesa með börnum, og gefin góð ráð um hvað ætti helst að lesa og hvernig best er að bera sig að. Þess utan eru gefnar hnitmiðaðar ábendingar um lestraruppeldi eftir því hversu gömul börnin eru.
Það er ósk þeirra sem að útgáfunni standa að allir gefi sér stutta stund til að glugga í bæklinginn og reikni eftir það með góðum tíma til að fara að ráðum hans, hvort sem þeir lesa fyrir sín eigin börn, barnabörnin, frækur eða frændur. Öll börn eiga skilið að fá sögur og ljóð – í morgunsárið eða fyrir svefninn – allan ársins hring. Gleðilega lestrarstund!