Þórarinn Leifsson

Lesist í einrúmi

Bækur Þórarins Leifssonar gera það gott í Danmörku þessa dagana. Um síðustu helgi birtist fjögurra stjörnu dómur um Bókasafn ömmu Huldar í stórblaðinu Politiken en það er í annað skipti sem barnabókagagnrýnandi blaðsins fer fögrum orðum um bækur Þórarins, fréttabréf danskra bókasafnfræðinga slær á svipaða strengi og einnig bókarýnisvefsíðan fortællingen.dk

Gagnrýnandi Politiken skrifar að bankakerfið hafi ekki verið útskýrt á svo skemmtilegan og hnitmiðaðan hátt síðan sænski rithöfundurinn Sven Wernström var upp á sitt besta á áttunda áratugnum. Hann segir eðlilegt að brjálæði og súrealismi komi upp á sögueyjunni eftir allt sem hefur gengið á undanfarin ár. Loks klykkir hann út með að höfundurinn beri ekki virðingu fyrir neinu nema börnum og bókmenntum.

Fortællingen.dk slær því fram að það sem geri Þórarinn Leifsson svo eftirtektarverðan sé að mitt í öllum fíflagangnum geti lesandinn staldrað við og tekið við alvarlegum boðskap sem glitti í undan kraumandi brjálæðinu. Dómurinn segir jafnframt að Bókasafn Ömmu Huldar sé ævintýri sem fái lesandann til að standa á öndinni.

Í síðustu viku mælti svo Weekendavisen sérstaklega með Leyndarmálinu hans pabba. Gagnrýnandi blaðsins segir teikningar Þórarins gulls ígildi og að menn verði að lesa bókina í einrúmi til að trufla ekki sessunautinn með hlátursrokum.

Leyndarmálið hans pabba kom út á dönsku undir nafninu Fars store hemmelighed vorið 2009 og ratar reglulega inn í dönsku blöðin. Bókin fiskaði meðal annars heilsíðuviðtal í Politiken fyrir höfundinn um síðustu jól eftir að ritstjóri bókablaðsins rakst á hana fyrir tilviljun.


INNskráning

Nýskráning