leshringur spyr

Leshringur Spyr: Styttist í stóru stundina

Ertu að lesa febrúarbók? Spyr hefur heyrt í nokkrum meðlimum leshrings og ljóst að þó nokkrir eru komnir langt með febrúarbækurnar, jafnvel búnir að lesa þá bók sem hver og einn valdi.

Næstu vikurnar er heilmikið á dagskrá hjá leshring Spyr og hér förum við yfir nokkuð af því helsta. Spyr ætlar að fá leshring í ,,heimsókn“ og heyra frá því hvað er á döfinni hjá leshring í Stykkishólmi sem nú er að lesa bókina Auði eftir Vilborgu Davíðsdóttur. Í Stykkishólmi verður haldin vegleg Bókahátíð á Hótel Egilsen sem vert er að kynna sér nánar en upplýsingar um hátíðina veitir Gréta Sigurðardóttir hótelstýra í síma 554 7700.

Um næstu helgi ætlar Spyr einnig að birta viðtal sem lesendur tóku við Stefán Mána rithöfund skömmu fyrir jól. Um að gera að lesa svörin hans Stefáns Mána við spurningum lesenda.

Forlagið undirbýr alls kyns tilboð sem leshringur mun geta nýtt sér á einstökum bókum sem leshringur mun taka fyrir á næstu vikum. Í bókabúð Forlagsins á Fiskislóð 39 er hægt að kaupa bækur frá öllum útgefendum landsins og oft bækur sem ekki eru lengur fáanlegar í bókabúðum. Bókabúð Forlagsins bendir á að heitt er á könnunni alla daga en verslunin er opin til kl.18 á virkum dögum og kl.15 á laugardögum.

Ýmsir lesendur hafa haft samband og lagt til bækur til að lesa og við hvetjum fólk til að vera ófeimið við að gera það því Spyr skráir niður allar hugmyndir. Tölvupóstur Spyr er spyr@spyr.is.

Það styttist í að Spyr fari að kalla eftir svörum við spurningum um febrúarbækurnar. Upphafleg hugmynd var að kalla eftir svörum í lok febrúar en ýmsir lesendur hafa nú þegar haft samband og eru búnir með sínar bækur. Leshringur Spyr gerir því ráð fyrir að hefja birtingar á svörum lesenda um hverja febrúarbók í næstu viku, þ.e. 19.febrúar nk.

Ert þú tilbúin með þín svör? Til upprifjunar birtum við spurningar ritstjóra Forlagsins fyrir hverja bók, – góða skemmtun!

Silja Aðalsteinsdóttir ritstjóri hjá Forlaginu lagði fram þessar spurningar fyrir lesendur bókarinnar Ósjálfrátt eftir Auði Jónsdóttur:

1. Ósjálfrátt er greinilega byggð á lífi höfundarins, Auðar Jónsdóttur, og hún þykir ganga býsna nærri sínu fólki. Finnst þér hún of grimm við sína nánustu?

2. Hvernig myndir þú lýsa stíl og frásagnarhætti sögunnar? Er hann ,,venjulegur” að þínu mati?

3. Gætir þú hugsað þér að verða vinkona Eyju eftir lestur bókarinnar?

Bjarni Guðmarsson ritstjóri hjá Forlaginu lagði fram þessar spurningar fyrir lesendur bókarinnar Húsið eftir Stefán Mána.

1. Hvað finnst þér um aðalpersónur sögunnar, Hörð og Theodór?

2. Hið yfirnáttúrulega gegnir stóru hlutverki í húsinu. Hvernig birtist það?

3. Hvað finnst þér um frásagnaraðferð höfundarins?

Sigþrúður Gunnarsdóttir ritstjóri hjá Forlaginu lagði fram eftirfarandi spurningar fyrir lesendur bókarinnar Hvítfeld – fjölskyldusaga eftir Kristínu Einarsdóttur.

1. Hver er sannleikurinn um fortíð Jennu Hvítfeld?

2. Hvaða áhrif hefur það á sögu þegar sögumaður og aðalpersóna segist vera lygari?

3. Hvað gera svipmyndirnar úr fortíðinni fyrir söguna af Jennu, er munur á fjölskyldunum tveimur sem standa að henni?

Kallað verður eftir svörum í lok febrúar og verða innsend svör frá lesendum birt á Spyr. Leshringur Spyr er fyrir alla og því ekkert skilyrði að senda inn svör til birtingar en það getur verið gaman fyrir alla að taka þátt, lesa bækurnar og svara spurningunum hver fyrir sig. Taktu þátt í leshringnum á Spyr og svaraðu spurningum ritstjóra Forlagsins, skráðu þig hér. Þú getur lesið um hverja febrúarbók leshrings undir ,,spurningar.“

INNskráning

Nýskráning