Nú fá Íslendingar tækifæri til að hitta Lene Hansson í eigin persónu og sitja námskeið hjá henni eða fá persónulega ráðgjöf og heilsuáætlun. Lene Hansson er einn fremsti næringarráðgjafi Danmerkur og höfundur metsölubókarinnar Léttara og betra líf – átta vikna heilsuáætlun, sem kom út síðastliðið vor.
Námskeið hjá Lene Hansson í Baðhúsinu / 20. september
Lene fjallar um sýru/basa-jafnvægi sem kemur jafnvægi á orku og þyngd. Einnig verður fjallað um fæðusamsetningarkerfi sem hjálpar líkamanum að hreinsa sig af úrgangsefnum, bætir ónæmiskerfið og hjálpar þér að léttast – til frambúðar!
Persónuleg ráðgjöf hjá Lene Hansson í Baðhúsinu / 21. – 23. september
Klukkustundar ráðgjöf þar sem farið er yfir matardagbók síðastliðna viku. Lene spyr um heilsufar þitt og gefur ráð um fæðusamsetningu. Með réttri fæðusamsetningu er hægt að vinna bug á háum blóðþrýstingi, ofnæmi, astma, ofþyngd, húðvandamálum og meltingartruflunum.
Nánari upplýsingar fást hjá Baðhúsinu, sími: 515-1900 / mottaka@badhusid.is