Leikverk og ný útgáfa af Flateyjar-Frey

Leikhópurinn Gral frumsýnir í kvöld sýninguna Eiðurinn og Eitthvað í Tjarnarbíói. Verkin eru skrifuð af Guðbergi Bergssyni, og eru þau fyrstu sem sá fjölhæfi höfundur skrifar fyrir svið. Viðfangsefni sýningarinnar er barátta skáldskaparins, hún getur jú tekið á sig ýmsar myndir. Við hvetjum allt leikhúsáhugafólk til þess að flykkjast í Tjarnarbíó. Ennfremur er útgáfugleði á á Bryggjukaffi í Grindavík á laugardaginn næsta þar sem fagnað verður útgáfu á ljóðabókinni Flateyjar?Freyr. Ljóðfórnir eftir Guðberg. Bókin er gefin út af Kind Publishing, útgáfu íslenskudeildarinnar í Winnipeg, og er á íslensku, ensku og þýsku. Þýðendur eru Adam Kitchen og Hans Brückner. Bókina prýða einnig ljósmyndir úr Flatey, þökk sé Guðbergi. Ljóðabókin kom fyrst út á íslensku árið 1978 hjá Máli og menningu. Árið 2007 kom hún út á íslensku og þýsku hjá Martin Schmitz Verlag í Þýskalandi.
Forlagið mun dreifa þessari nýju bók.

INNskráning

Nýskráning