Guðbergur Bergsson

Leiðsögn um sýninguna Ásýnd landsins

Guðbergur Bergsson rithöfundur gengur með gestum um sýninguna Ásýnd landsins í Gerðarsafni nk. sunnudag kl. 15.  Á sýningunni eru málverk, vatnslitamyndir, teikningar og ljósmyndaverk eftir Daða Guðbjörnsson, Gunnlaug Scheving, Jóhannes S. Kjarval, Rúrí og Vilhjálm Þorberg Bergsson sem Guðbergur hefur valið saman.

Um það sem tengir þessi ólíku verk og listamenn segir Guðbergur meðal annars í sýningarskrá:

„Sigling er veigamikið sjónrænt framsækið atriði í verkunum á þessari sýningu, og siglingin er einnig innsæi inn í víddirnar. Oft er ekki um beina siglingu að ræða heldur er hún falin, en hún getur líka tengst hlutum í veruleikanum, eins og skipum á sæ. Algengari er samt sigling forma í lausu lofti, sigling á flugi, hrein sigling sjávar. Sigling á jörð getur verið afmörkuð með rennsli hleðslu í grjótgarði. Á öðrum stöðum brýst fram sigling vatns í fossum.  Sigling getur verið það sama eða hliðstæð flugi í andlegum skilningi. Þetta einkenni í íslenskri list er samt helst tengt því að sigla krappan sjó, siglingu á grunnsævi, sjómennsku, veiðum, miklu fremur því en úthafssiglingum beinlínis. Til að stunda þær er þörf á djörfum hugmyndum sem eiga kannski eftir að vakna af krafti í íslenskri myndlist.“

Sýningin stendur til sunnudagsins 20. febrúar. Safnið er opið alla daga nema mánudaga frá 11-17. Aðgangur er 500 kr en frítt er inn á miðvikudögum.

INNskráning

Nýskráning