Í ár eru liðin 110 ár frá fæðingu Halldórs Laxness. Í tilefni afmælisins var slegið upp Laxnesshátíð þar sem ýmsir dagskrárliðir hafa verið í boði fyrir almenning og hátíðin er enn í fullum gangi.
Í þjóðarbókhlöðunni stendur yfir sýningin Bernska skálds í byrjun aldar, Í Bíó Paradís er haldin kvikmyndavika til heiðurs Halldórs Laxness sem ber yfirskriftina Laxness í lifandi myndum og í lok mánaðar mun Símon Jón Jóhannsson fjalla um bókina Gljúfrasteinn – hús skáldsins sem kom út fyrir skömmu, í sjálfu húsi skáldsins á Gljúfrasteini.
Nánari upplýsingar um dagskrá Laxnesshátíðar má finna á heimasíðu Gljúfrasteins.