Er ekki skrýtið að mikið og frægt skáld hafi einu sinni verið lítill pottormur sem fyllti nefið af pipar og gæddi sér á hundamjólk? Flestir krakkar þekkja nafn Halldórs Laxness en fáir vita nokkuð meira um hann.
Fyrir jól endurútgaf Forlagið bók Auðar Jónsdóttur, Skrýtnastur er maður sjálfur, þar sem hún dregur upp mynd af afa sínum, Nóbelsskáldinu, bæði sem litlum dreng og sem gamla manninum sem hún þekkti.
Á dögunum fékk bókina glimrandi fimm stjörnu dóm í DV en þar sagði Valur Gunnarsson, gagnrýnandi, meðal annars:
„Í fyrstu er um hreinræktaða barnabók að ræða, þar sem Auður blandar saman eigin minningum og þeirri æsku sem Halldór lýsti sjálfur í verkum sínum. En síðan vex hann úr grasi og bókin verður ágætis aldarspegill, Ísland breyttist óðum á þessum tíma, heimsstyrjaldir og heimskreppur dundu á. Þannig er bókin ekki bara inngangur að bókmenntasögu landsins, heldur einnig að sögu 20. aldar, og geri aðrar barnabækur betur … bókin er ekki síður óður til allra afa, sem ef til vill eiga erfitt uppdráttar nú á tímum tölvunnar.“
Skrýtnastur er maður sjálfur er frábær kynning á Laxness, tilvalin uppspretta samræða og hentar vel fyrir fjölskyldur að lesa saman.