Gagnrýnandi dagblaðsins Hamburger Abenblatt í hafnarborginni frægu í Þýskalandi er stóryrtur í garð kollega Auðar Jónsdóttur í rithöfundastétt í dómi sínum um þarlenda útgáfu Vetrarsólar sem nýverið kom út. Í niðurlagi dómsins segir að þó til séu flottir kvenrithöfundar í Þýskalandi, sem skrifi sæmilegar bækur um konur, sé eins og hópur af latte-lepjandi vinum hafi komið saman til að skrifa þær. Það skorti hins vegar skáldverk sem eru djúpvitur og ljóðræn en lausnin sé greinilega að flytja þau inn frá Íslandi!
Rýnirinn er afar sáttur við bókina og hælir einnig þýðandanum Kristof Magnussyni fyrir sitt starf.