Sigrún Eldjárn

LANGAFI PRAKKARI í Gerðubergi

Leikritið Langafi prakkari sem byggt er á sögum Sigrúnar Eldjárn verður sýnt í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi á laugardaginn 25. febrúar kl. 14.00.

Bækur Sigrúnar Eldjárns um þennan skemmtilega prakkara hafa um árabil notið mikilla vinsælda meðal yngstu lesendanna. Í þessari leikgerð er stuðst við bækurnar Langafi drullumallar og Langafi prakkari. Sýningin er ein sú allra vinsælasta í sögu Möguleikhússins, en sýningar á Langafa prakkara eru nú farnar að nálgast þriðja hundraðið.

Miðaverð er kr. 2.000 og tekið er á móti miðapöntunum í s. 562 2669 og á moguleikhusid@moguleikhusid.is


INNskráning

Nýskráning