Warm Country

Landið hlýja komin aftur!

Ísland, náttúran og fólkið, rúmast allt í bók Sigurgeirs Sigurjónssonar, Ísland – landið hlýja í norðri. Bókin hefur notið gífurlegra vinsælda en yfir 140.000 eintök hafa verið seld, á hinum ýmsu tungumálum. Torfi H. Tulinius ritar formála og myndatexta.

Bókin kom fyrst út fyrir 20 árum síðan, árið 1994, en hefur nú verið endurútgefin í mikið endurbættri útgáfu. Allar myndir í bókinni hafa verið endurunnar og kápa og form bókarinnar endurhönnuð.

Bókinni var dreift í dag en hún kemur nú út á finnsku, norsku, sænsku, dönsku, ensku, frönsku og spænsku.

INNskráning

Nýskráning