Opna úr íslenskri listasögu

Kynning á Íslenskri listasögu

Listasafn Íslands er með metnaðarfulla fræðsludagskrá næstu mánuði í tilefni útgáfu Íslenskrar listasögu. Miðvikudaginn 28. september verður fyrsta höfundakynningin af fimm  þar sem efni ritsins er kynnt. Á þessari fyrstu kynningu verður fyrsta bindið kynnt af Ólafi Kvaran, ritstjóra og Júlíönu Gottskálksdóttur, listfræðingi. Kynningin stendur frá 12:10-13:00. Höfundakynningarnar munu fara fram næstu miðvikudaga á þessum tíma.

Einnig er boðið upp á sunnudagsleiðsögn alla sunnudaga.

Nánar um fræðsludagskrá Listasafns Íslands er að finna hér.


INNskráning

Nýskráning