Ríólítreglan, ný bók metsöluhöfundarins Kristínar Helgu, hefur aldeilis slegið í gegn enda á höfundurinn marga aðdáendur sem bíða spenntir eftir nýju efni. Bókin, sem kom út fyrir mánuði síðan, hefur nú þegar verið endurprentuð og hefur setið í efstu sætum metsölulista frá fyrstu viku.
Eftir sigurgöngu Fíusólar hjá yngstu kynslóðinni kemur nú bók í anda fyrri bóka Kristínar Helgu, sem fléttar saman íslenskar þjóðsögur og spennandi samtímasögu. Í Ríólítreglunni er að finna allt sem prýðir skemmtilega spennusögu; dularfullir atburðir, undarlegar verur, leyndarmál fortíðar og æsispennandi söguþráður sem æðir með lesandann suður til Kólumbíu, vestur á firði, um rústir álfabyggða og í fótspor ribbalda inn Jökulgil.
Þess má geta að Kristín Helga les upp úr Ríólítreglunni á upplestrarkvöldi á Sunnlenska bókakaffinu, fimmtudagskvöldið 15. desember, ásamt öðrum rithöfundum sem lesa upp úr bókum sínum. Upplesturinn hefst kl. 20:00.