Skáldkonur á Skaga

Kvöldvaka á Bókasafni Akraness

Tvær skáldkonur af Skaga kynna nýjar bækur sínar, mánudagskvöldið 13. desember kl. 20. Sigurbjörg Þrastardóttir rithöfundur kynnir ljóðabók sína Brúður sem  er sérkennileg og heillandi bók um brúðkaup. Sannkölluð skyldulesning fyrir einhleypa, kaldhæðna, hamingjusamlega gifta og rómantíkera. Steinunn Jóhannesdóttir kynnir bók sína Heimanfylgju: skáldsögu um uppvöxt Hallgríms Péturssonar byggða á heimildum um ættfólk hans og samtíð. Steinunn hefur rannsakað líf og skáldskap Hallgríms um árabil. Heimanfylgja er heillandi þroskasaga hins unga Hallgríms fram á unglingsár sögð af alúð og hugkvæmni. Áður hefur Steinunn skrifað um ævintýralegt lífshlaup eiginkonu Hallgríms í metsölubókinni Reisubók Guðríðar Símonarsdóttur.

Þá munu félagar úr Kammerkór Akraness syngja lög við ljóð Hallgríms undir stjórn Sveins Arnars Sæmundssonar

Verið velkomin!

INNskráning

Nýskráning