Kuggur á þorrablóti

Það er hávetur og þorri genginn í garð. Málfríður vill ólm halda þorrablót en mömmu hennar líst ekki vel á það. Henni finnst vera fýla af þorramatnum og siðurinn alltof gamaldags!

Bækur Sigrúnar Eldjárn um ljóshærða spekinginn Kugg og ólíkindatólið Málfríði vinkonu hans njóta mikilla vinsælda meðal yngstu lesendanna. Nú er bókin Þorrablót loksins fáanleg aftur. Frábær bók fyrir uppátækjasama krakka.




INNskráning

Nýskráning