Þrjár nýjar ævisögur sem koma út hjá Forlaginu fyrir jólin eru um konur sem eiga það sameiginlegt að eiga mikla reynslu að baki, hafa sterkar skoðanir og liggja ekki á þeim. Þetta eru bækurnar Úr þagnarhyl sem er ævisaga Vilborgar Dagbjartsdóttur, Sólarmegin – ævisaga Herdísar Egilsdóttur og Ekki líta undan – saga Guðrúnar Ebbu.
Allar konurnar hafa gert kennslu að ævistarfi sínu en að öðru leyti eiga þær mjög ólíka reynslu að baki. Herdís fjallar um það að vera einstæð móðir með þrjú börn ásamt því að vera í fullu starfi á tímum sem ekki gerðu ráð fyrir slíkri tilhögun. Einnig er fjallað um nýstárlegar kennsluaðferðir hennar sem hún kom á fót í Ísaksskóla á sínum tíma. Í sögu Vilborgar fær skáldskapurinn, pólitíkin, kvennabaráttan og ástin sinn sess. Guðrún Ebba fjallar á einlægan og opinskáan hátt um kynferðislegt ofbeldi sem hún var fyrir af hendi föður síns og afleiðingar þess, sem hún hefur þurft að eiga við síðan.
Metnaðarfullar ævisögur þriggja kvenna sem hæfa mann í hjartastað.