Kristján Árnason hlaut í gær Menningarverðlaun DV í flokki bókmennta fyrir þýðingu sína á Ummyndunum rómverska skáldsins Óvíds. Verk þetta er eitt af stórvirkjum heimsbókmenntanna, ritað um þær mundir er tímatal okkar hefst en er nú loksins fáanlegt í heildstæðri útgáfu á íslenskri tungu.
Auk þýðingarinnar ritar Kristján einnig inngang og skýringar í bókina sem án nokkurs vafa er skyldueign á hverju menningarheimili.
Kristján er einnig tilnefndur til Íslensku þýðingaverðlaunanna fyrir öndvegisþýðingu sína.