Kristín Ragna Gunnarsdóttir hlaut Dimmalimm – Íslensku myndskreytiverðlaunin í dag fyrir myndir sínar í bókinni Hávamál, þar sem Þórarinn Eldjárn yrkir upp forna speki Óðins þannig að hún er skýr og skiljanleg nútímafólki á öllum aldri. Formaður dómnefndar, Aðalsteinn Ingólfsson, gerði grein fyrir vali dómnefndarinnar með eftirfarandi orðum:
„Við þrjú sem erum í dómnefnd, sjálfur ég, Kalman le Sage de Fontenay, grafískur hönnuður og Bryndís Loftsdóttir, bókafrömuður, höfum hingað til verið nokkuð samstíga í kröfugerð okkar til myndlýsinga í barnabókum. Við höfum lagt á það áherslu að myndirnar í bókunum væru ekki einskær endurspeglun textans, heldur ykju við hann og gerðu hann innihaldsríkari, væru jafnvel lífvænlegar utan bóka.
Þetta á sannarlega við um bók Kristínar Rögnu, sem nú hlýtur þessi verðlaun öðru sinni. Hún teflir saman hreinni teikningu, málverki og samklippi sem vísar í allar áttir, og þá sérstaklega í íslenskan samtíma. Þegar auðssöfnun er nefnd, sáldrar hún erlendri mynt vítt og breitt um arkir, annars staðar rekur hún hlykkjótta slóð nískupúka til sælueyjunnar Tortólu; erindi um matgræðgi fylgir umgjörð sem minnir á matgæðingaþætti sjónvarps og orðtakinu fræga „þjóð veit ef þrír vita“ fylgir mynd af púka sem nýsist fyrir á Fjésbókinni.
Allt er þetta gert af listfengi, smekkvísi og í takt við snilldarlega hantéringu Þórarins Eldjárn á hinum forna texta.“
Dimmalimm-verðlaunin voru veitt í tíunda sinn í dag og tók Snæfríður, dóttir Kristínar Rögnu, við verðlaununum fyrir hönd móður sinnar, að sjálfsögðu úr hendi Dimmalimm sjálfrar.