Kristín Marja Baldursdóttir

Kristin Marja leikskáld Borgarleikhússins

Í dag var tilkynnt að Kristín Marja Baldursdóttir, rithöfundur, muni gegna stöðu leikskálds Borgarleikhússins veturinn 2012-2013. Kristín Marja er þekkt fyrir gríðarlega vinsælar bækur sínar, svo sem Mávahlátur, bækurnar um Karitas,  og nýjustu bók hennar, Karlsvagninn.

Einnig var greint frá því hvaða þrjú ungu leikskáld hafa verið valin til að þróa hugmyndir sínar að stuttum leikverkum sem sviðsett verða í Borgarleikhúsinu næsta vetur. Það voru þau Kristín Eiríksdóttir, en smásagnasafn hennar Doris deyr kom út árið 2010, Salka Guðmundsdóttir og Tyrfingur Tyrfingsson.

Forlagið óskar Borgarleikhúsinu til hamingju með að fá svona hæfileikaríkt og flott fólk í lið við sig.

INNskráning

Nýskráning