Bókmenntaverðlaun Ríkisútvarpsins voru veitt við hátíðlega athöfn í Útvarpshúsinu síðdegis í gær á 80 ára afmæli RÚV. Þau hlutu rithöfundarnir Kristín Marja Baldursdóttir og Eiríkur Guðmundsson sem bæði þökkuðu heiðurinn með stuttri ræðu. Auk viðurkenningarinnar fengu þau 400 þúsund krónur hvort.
Kristín Marja hefur átt gífurlegum vinsælum að fagna í Danmörku í ár, þar sem aðdáendur bóka hennar flykkjast í þúsundatali á fyrirlestra hennar og Gyldendal keppist við að gefa út bækur hennar í ýmsum útgáfum. Ekki eru vinsældir hennar minni í Þýskalandi, en þar hefur útgefandi hennar, Fischer verlag, áformað veglega endurútgáfu á öllum fyrri bókum hennar í tengslum við útgáfu Karlsvagnsins á næsta ári og heimsókn höfundarins. Í Frakklandi bíða lesendur spenntir eftir Óreiðu á striga, sem von er á snemma næsta ár, en hún er nýkomin út í Hollandi og hafa lesendur tekið henni einstaklega vel.