Skáldsagan Rósablaðaströndin fær fjögurra stjörnu umsögn frá Steinþóri Guðbjartssyni í Morgunblaðinu í dag. Steinþór segir söguna snerta lesandann, það sé síst að marka það sem sýnist svo slétt og fellt á yfirborðinu – undir niðri kraumi allt og ástandið geti endað með ósköpum. Það er jú vandlifað í henni veröld.
Bækur Koomson eiga sér aðdáendahóp út um allan heim og hér á Íslandi hafa þær notið mikillar hylli. Tvær aðrar bækur eru enn fáanlegar – Mundu mig, ég man þig og Konan sem hann elskaði áður en tvær þeirra fyrstu eru uppseldar.