Krassandi íslensk erótík

Hér á Forlags-skrifstofunni hefur mikið verið rætt og skrafað um nýjustu íslensku skáldsöguna okkar Elskhugann sem kom út í dag. Enda er innihaldið fremur krassandi, meira að segja á mælikvarða Forlagsins. Þar er fjallað um rekkjubrögð af öllu tagi og leikar berast víða … meðal annars undir borð og upp á hest. Erótískar bókmenntir eiga upp á pallborðið í útgáfuheiminum um þessar mundir svo það verður forvitnilegt að sjá hvernig íslenskir lesendur taka þessari nýju sögu.

INNskráning

Nýskráning