Það er komið að síðasta Bókakonfektinu okkar í ár. Bókaunnendur og höfundar hafa fjölmennt á Rósenberg undanfarin miðvikudagskvöld og skemmt sér innilega yfir frásögnum, upplestrum, músík og mingli – með konfekti og laufléttum drykkjum. Höfundarnir sem kynna verk sín núna á miðvikudaginn, 27. nóvember er, eru Stefán Máni (Grimmd), Þórunn Erlu- og Valdimarsdóttir (Stúlka með maga), Sveinn Einarsson (Kamban), Steingrímur Sigurgeirsson (Vín – frá þrúgu í glas), Þórarinn Eldjárn (Grannmeti og átvextir), Kjartan Yngvi Björnsson (Draumsverð) og Sjón (Mánasteinn).
Þeir sem mæta snemma eiga von um frían drykk. Þeir sem mæta seint fá líklega ekki sæti því húsið fyllist hratt.
Það eru talsverðar líkur á lýrískum dansi.