Nýjasta bók Hallgríms Helgasonar, Konan við 1000°, er nýkomin út á Íslandi en hún hefur þegar tekið flugið í Þýskalandi. Bókin heitir í þýskri þýðingu „Eine Frau bei 1000°“ og kom út þann 23. september 2011 hjá Klett-Cotta forlaginu í Stuttgart. Sagan hefur fengið afar góðar viðtökur, selst vel og er nú í 36. sæti á metsölulista Spiegel.
Þýskir ritdómarar láta heldur ekki sitt eftir liggja eins og eftirfarandi orð vitna best um:
„Ekki hægt að loka þessari bók.“ – Johan Dehoust, Der Spiegel
„Bók ársins!“ – Kristian Thees, SWR3 Radio
„Þessi bók „geðjast“ ekki. Hún rokkar!“ – Andrea Ritter, Stern
„Hallgrími Helgasyni hefur tekist að skrifa stórkostlega íslenska útgáfu af kararlegunni í anda Heinrichs Heine.“ – Carola Wiemers, Deutschlandradio Kultur
„Við fylgjum sögu Herbjargar með öndina í hálsinum.“ – Tilman Spreckelsen, Frankfurter Allgemeine Zeitung
„Hér er svo mikið af frumlegum hugmyndum að dugað gæti öðrum í heilan rithöfundaferil.“ – Tobias Wenzel, NDR Kultur (útvarp)
„Yndislega klikkuð skáldsaga.“ – Jutta Persson, Süddeutsche Zeitung
„Í Herbjörgu Maríu hefur höfundurinn hefur skapað stórfenglega kvenpersónu.“ – Peter Zimmermann, Ö1 ORF Hörfunk
„Setningar söguhetjunnar eru sem hnefahögg, því svo heiðarleg er hún að undan svíður.“ – Profil
Rainer Moritz skrifar í Stuttgarter Zeitung og vitnar í bók Hallgríms: „Þá virðist það gilda með rithöfunda að því meira óspennandi sem verk þeirra eru, því meira spennandi er einkalífið.” Af þessum orðum dregur hann eftirfarandi ályktun: „Sé þetta rétt hlýtur einkalíf Hallgríms Helgasonar að vera algjör eyðimörk.“