Útgáfuréttur á nýjastu bók Hallgríms Helgasonar, Konan við 1000°, sem kom út á Íslandi fyrir jólin hefur nú þegar verið seld til fjögurra annarra landa og nú síðast til Ungverjalands. Bókin kom fyrst út í Þýskalandi í undanfara Bókamessunnar í Frankfurt og í kjölfarið fór Hallgrímur í upplestraferð um landið og hlaut gífurlega góðar móttökur. Þýskir fjölmiðlar hrósuðu bókinni í hástert og fékk Hallgrímur mikla athygli. Ekki hafa viðtökurnar á Íslandi verið síðri en bókin hefur verið á íslenskum metsölulistum frá því að hún kom út.
Fyrir utan Ísland og Þýskaland hefur útgáfurétturinn einnig verið seldur til Danmerkur, Rússlands og Ungverjalands.