Kristín Marja Baldursdóttir

Konan á þúsund síðum

Á nýju námskeiði hjá Endurmenntun Háskóla Íslands verður rýnt í ríflega 1000 síðna verk Kristínar Marju Baldursdóttur um listakonuna Karitas, bækurnar Karitas án titils(2004) og Óreiða á striga (2007). Umfjöllun og umræður munu taka mið af nærlestri á skáldverkinu en einnig verður leitast við að tengja efni bókanna sögu íslenskra kvenna. Gefið verður yfirlit yfir höfundarferil Kristínar Marju og spáð í helstu þemu og einkenni á bókum hennar.

Soffía Auður Birgisdóttir, bókmenntafræðingur, er kennari við námskeiðið. Skráningarfrestur er til 22. október og þátttakendum námskeiðsins er boðið að kaupa bækurnar um Karitas á sérstöku tilboðsverði áður en námskeiðið hefst í verslun Forlagsins, það þarf eingöngu að framvísa staðfestingu á skráningu til að nýta tilboðið. Einnig býðst þátttakendum að kaupa bækurnar á sérstöku tilboðsverði Forlagsins í kaffihléi á fyrsta námskeiðskvöldinu.

Nánari upplýsingar um námskeiðið.

INNskráning

Nýskráning