Komin kiljutíð

Nýjar kiljur dælast í hús þessa dagana. Fyrir lesfúsa minnum við til dæmis á stórskemmtilegan Karlsvagn Kristínar Marju Baldursdóttur og hina sígildu sjálfsævisögu Stefans Zweig, Veröld sem var.  Húmoristar ættu að hafa einkar gaman af ógleymanlegri háðsádeilu Halldórs Laxness í Gerplu og geta auðveldlega brosað út í annað yfir báðum bindum ævisögu Þórbergs Þórðarsonar – ÞÞ – Í fátæktarlandi og ÞÞ – Í forheimskunarlandi. Spennuþyrstir geta sökkt sér í Póstkortamorðin eftir Patterson og Marklund, bókin sú tætist af lagernum okkar og gæti hreinlega klárast á næstu dögum ef fram fer sem horfir. Yngri lesendur fá sitthvað fyrir sinn snúð líka því stórskemmtileg saga Kristínar Steindóttur, Hetjur, er komin út í kilju sem og hin dásamlega Fíasól í hosiló eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur sem ófáanleg hefur verið um langa hríð.  Ekki er allt talið en ef svo illa færi að engin fyrrgreindra bóka hugnast lesendum getum við alltaf mælt með Skúla skelfi, fyrir allan aldur. Fyrsta bókin um æringjann ameríska er nú fáanleg aftur.

INNskráning

Nýskráning