Mía litla

Komdu í Múmínkaffi!

Til að fagna endurútgáfu Halastjörnunnar eftir Tove Jansson blæs IBBY á Íslandi til umræðukvölds á Súfistanum í Reykjavík þriðjudagskvöldið 9. nóvember nk. kl. 20. Þar munu valinkunnir múmínaðdáendur fjalla um íbúa Múmíndals og ævintýri þeirra. Erna Erlingsdóttir flytur erindið Seint í nóvember. Síðasta múmínbókin, fjarvera og ferðalög, Stefán Pálsson flytur erindið Múmínsnáðinn, Kattholtsstrákurinn, Erlendur lögregluforingi & Sir Edmund Halley og Dagný Kristjánsdóttir flytur erindið Múmínálfarnir og hamskiptin.

Sérstakur gestur frá múmínvinunum í borgarstjórn verður Óttarr Ólafur Proppé.

Allir eru velkomnir og aðgangur endurgjaldslaus.

INNskráning

Nýskráning