Bók Hallgríms Helgasonar 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp hefur verið tilnefnd til verðlauna sem „forvitnilegasti bókatitillinn á á þýska bókamarkaðnum 2010. Upp á þýskuna ber bókin titilinn Zehn Tipps, das Morden zu beenden und den Abwasch zu beginnen og nú stendur yfir kosning á heimasíðunni http://www.kuriosesterbuchtitel.de/ þar sem almenningur getur kosið. Þær bækur sem verða í sex efstu sætunum fara svo fyrir dómnefnd sem velur vinningshafann. Stöðuna í kosningunni má sjá eftir að viðkomandi hefur kosið og er 10 ráð… í fjórða sæti sem stendur.
Kosningunni lýkur lýkur 20. september svo nú er um að gera að kjósa. Smelltu hér til að taka þátt.
Verðlaunin virðast mest til gamans gerð, og til greina koma bæði skrýtnir, snjallir og fyndnir titlar, en einnig þeir sem eru óviljandi fyndnir. Í fyrra var sigurvegarinn Lífið er enginn Waldorfskóli. Verðlaunin verða afhent á bókamesssunni í Frankfurt í október.