Sagan af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason, í myndlýsingu Áslaugar Jónsdóttur, er komin út í Kína. Innbundna bókin hefur líka verið uppseld hérlendis um nokkra hríð en von er á sjöttu prentun hennar í verslanir síðar í vikunni.
Áður hefur Sagan af bláa hnettinum verið seld til Japans, Frakklands, Spánar, Ítalíu, Þýskalands, Danmerkur, Svíþjóðar, Noregs, Finnlands, Færeyja, Grænlands, Eistlands, Litháens, Rússlands, Tælands, Kóreu, Júgóslavíu, Rúmeníu, Ungverjalands og Grikklands. Það hefur því 21 land tryggt sér réttinn að bókinni og dreifing nær til fjölda annarra landa. Ekkert lát virðist á vinsældum bókarinnar og hún er til skoðunar hjá útgefendum um heim allan.
Sagan af bláa hnettinum er fyrir löngu orðin víðförulst íslenskra barnabóka síðari tíma. Verkið hefur einnig hvarvetna vakið hrifingu lesenda og má nefna að franski útgefandi verksins, Gallimard, sem er eitt virtasta forlag þar í landi, kallar bókina „Litla Prinsinn þessa árþúsunds“. Þegar bókin kom út í Japan fékk útgefandinn frú Vigdísi Finnbogadóttur og hljómsveitina múm til að skrifa umsögn um bókina. Var umsögnin prentuð á sérstakan borða og sett utan um hvert eintak. Hefur það vakið frekari athygli á bókinni enda bæði Vigdís og múm vel þekkt þar í landi.
Sagan af bláa hnettinum kom út hjá Máli og menningu árið 1999 og hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin sama ár í flokki fagurbókmennta, fyrst barnabóka. Á dögunum hlaut bókin líka „Verðlaun verðlaunanna“ þegar lesendur vefsins Mbl.is völdu hana bestu verðlaunabók Íslensku bókmenntaverðlaunanna í vinsældakosningu í flokki fagurbókmennta. Þess má geta að Draumlandið eftir Andra Snæ vann sömu verðlaun í flokki rita almenns eðlis.
Sagan hefur síðan unnið til ýmissa annarra verðlauna og tilnefninga. Hún hlaut Vest-Norrænu barnabókaverðlaunin, pólsku Janusz Korczak- heiðursverðlaunin, tilnefningu til Norrænu barnabókaverðlaunanna og fleira. Leikrit byggt á bókinni vann til verðlauna og var sýnt í Þjóðleikhúsinu árið 2001 við miklar vinsældir og var að auki sýnt daglega í tvo mánuði í Toronto í Kanada vorið 2005 í Lorraine Kimsa Theatre for Young People. Uppfærslan var tilnefnd til fimm verðlauna á helstu leiklistarverðlaunahátíð Kanada, Dora Mavor-Moore-verðlaunanna, fyrir bestu búningahönnun, bestu sviðshönnun, besta danshöfund, besta leikstjóra og bestu leiksýningu ársins. Verkið hlaut verðlaunin fyrir bestu leikmynd og búninga. Toronto er önnur stærsta leikhúsborg í Norður-Ameríku á eftir New York. Leikritið hefur verið sýnt víðar og var sett upp í annað sinn í Finnlandi vorið 2009, við Borgarleikhúsið í Vasa en fyrri uppfærslan þar í landi var á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu í Lahti en salurinn er með þeim stærstu í Finnlandi. Einnig var verkið sett upp í Pakistan.