Kiljur eru alltaf vinsælir ferðafélagar á sumrin en seljast þó líka vel í jólabókaflóðinu. Mjúkar og léttar kiljur eru líka tilvaldar til að kúra með á vetrarkvöldum og sóma sér vel sem „harði (ódýri) pakkinn“ undir trénu. Kiljurnar Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf og Húshjálpin eru dæmi um slíkar kiljur enda hafa vinsældir þeirra verið gífurlegar. Lesendur hreinlega rífa þessar skáldsögur í sig; Gamlingann af ærslfullri gleði, Húshjálpina af dramatískri innlifun. Þessar kiljur eru nú að fara í endurprentun, Gamlinginn í 7. prentun, svo að allir geti örugglega sett eitt stykki undir jólatréð.