Aldirnar eru sígildar og einstaklega vinsælar bækur þar sem Íslandssögunni eru gerð skil á aðgengilegan hátt í máli og myndum. Helstu atburðir hvers árs eru raktir í stuttum greinum sem höfða til lesenda á öllum aldri. Nú er komin út ný bók í þessari geysivinsælu ritröð þar sem „öldinni“ er lokað en umfjöllunarefni hennar eru árin 1996-2000. Þar geta lesendur rifjað upp eftirminnileg atvik og viðburði í sögu þjóðarinnar, eins og fyrstu menningarnóttina og fyrstu hinsegin gönguna, andstöðuna við Hvalfjarðargöngin, undirheimastríð í Reykjavík, guðlastið í Spaugstofunni og havaríið í kringum Fjölni Þorkelsson – svo fátt eitt sé nefnt. Ritstjóri er Guðmundur Magnússon.
Ennfremur koma nú út sjö eldri bækur í seríunni sem verið hafa uppseldar árum saman. Því gefst aðdáendum ritraðarinnar kjörið tækifæri til þess að bæta í safnið því nú eru aldirnar allar fáanlegar aftur.